|
|
04.03.2009 19:06:01 / eddas
Ég lenti í smá umræðu um
daginn í sambandi við ættleiðingar á Íslandi, hvort að maður gæti ættleitt barn
hér heima eða hvort að fólk yrði að leita erlendis. />
Mig minnti að Kína hefði
verið búið að loka á Ísland fyrir um 2 árum síðan og ákvað að kíkja aðeins og
skoða þetta nánar... ekki það að ég sé að fara ættleiða, en hvað veit maður svo
sem. Það er ekki sjálfgefið að geta eignast barn, og veistu það ekki fyrir víst fyrr en á reynir hvort sá möguleiki sé fyrir hendi eður ei. Ég hef engra hagsmuna að gegna hér í þessu bloggi mínu, en þetta er bara eitt af því sem ég get velt mér upp úr... Kína er ekki búið að loka
á Ísland en það sem gerðist var að samkynhneigt fólk í vígðri sambúð geta ekki
ættleitt. Það sem meira er og kom mér pínulítið á óvart er hversu strangar
reglur eru settar sem skilyrði til að “bjarga” barni frá þessum hræðilegu fósturheimilum
sem þrífast í þessu blessaða landi. Fyrir áhugasama er linkur hér til að lesa
yfir bannlistann góða />
http://www.isadopt.is/index.php?p=kina />
ég gæti til dæmis aldrei
ættleitt ef til þess kæmi þar sem ég hef slæma sjón býst ég við...eða
þannig. />
/>En það sem mér finnst
hvað mest spes í þessu öllu saman er að ég rakst á heimildarþátt sem var gerður
fyrir nokkrum árum síðan sem heitir the dying rooms. Þetta er heimildarþáttur
um fósturheimili víðs vegar um Kína og er verið að komast að því hvort að það séu
til dying room í einhverjum þeirra. />
Þó það sé ekki dying rooms allstaðar að þá finnst mér samt sem áður alveg ótrúlegt að Kínversk stjórnvöld
skuli setja svona ótrúlega strangar reglur um ættleiðingar. Það þarf ekki
stjörunfræðing til að sjá að hvert eitt og einasta barn þarna úti mundi hafa
það mun betur hjá fólki sem gæti veitt því smá ást og hlýju burt séð hvort að
það sé gagn- eða samkynhneigt eða hvort viðkomandi eigi íbúð eður ei. > >Mig langar að setja inn
þessi myndbönd og mæli ég með því að fólk gefi sér tíma til að horfa á þau. Þú gætir
þurft að taka pásu, en þegar ég horfi á svona, skil ég ekki hvað kínverskum stjórnvöldum
gengur til... hvorki í þessum málum eða einhverjum öðrum svo sem. http://www.youtube.com/watch?v=R_Uq3z7KOjM http://www.youtube.com/watch?v=HnK8tgAAFsI http://www.youtube.com/watch?v=vDUT-ZWZWJ8 http://www.youtube.com/watch?v=eSyEdT_x-SI
Eins og ég sagði að þá er þetta pínu langt en ég vona að þið gefið ykkur tíma ef þið hafið áhuga það er. En annars bið ég ykkur bara vel að lifa... árshátíð á laugardag... vííí ... er það ekki annars 
/>
»
15.02.2009 16:07:25 / eddas
Er það bara ég eða hefur veðrið og birtan mikil áhrif á líðan ykkar. Það er svo nice þegar dag tekur að lengja og hitastig fer hækkandi Mér finnst bara eins og það sé hitabylgja núna til dæmis, heilar 4 gráður. Já það er allt skárra en – 11 gráðu gaddurinn sem beit mig um daginn. Brrr það var kalt... ég held án gríns að ég hafi búið í Afríku í fyrra lífi – heitustu Afríku þá. Þessi kuldi á bara ekkert alltof vel við mig haha. Held reyndar að ég hafi líka verið sprautufíkill og látist í hræðilegu bílslysi í fyrra lífi þar sem mér er bæði hrikalega illa við sprautur og sjúkrahús og er “frekar” bílhrædd En það er annað mál.
Talandi um sjúkrahús... þá lenti bíllinn minn inni á slíku um daginn  en hann varð fyrir því óhappi að bila um daginn. Háspennukefli 4 var víst farið en þessi kefli eru búin að fara hvert á fætur öðru í 1 og hálft ár núna. En nóg um það. Ég verð að viðurkenna fávisku mína þegar kemur að bílum. Ég hef ekki sense fyrir neinu í honum og veit ekki hvað neitt heitir í vélinni eða þar í kring Þess vegna er nauðsynlegt að eiga stundum eins og einn karl eða svo... sem ég á reyndar ekki.
Eeeen allavega var mér bent á eitt ágætt verkstæði í Hafnarfirði sem ég skundaði með þrumuna mína höktandi og hikstandi greyið og tóku allir framúr henni þar sem hún var frekar kraftlítil greyið. Ég rétti manninum blað sem hafði verið prenntað út og á því stóð hvert meinið væri og fór svo aftur í vinnu. Þegar ég svo sótti bílinn beið ég á biðstofunni eftir að fá afgreiðslu og ég fór aðeins að spá í myndunum þarna inni í biðstofunni og á verkstæðinu í heild sinni. Þetta verkstæði er svo sem ekkert frábrugðið öðrum verkstæðum sem ég hef farið á, skreytt plaggötum eða dagatölum með berbrjósta konum um alla veggi. Ég er ekki að dæma þessa menn fyrir að vilja hafa þessar myndir hjá sér. En ég fór að hugsa um sambærilegar stofur sem konur sækja í eins og til dæmis snyrti- eða hárgreiðslu stofur. Hvernig væri það ef maður færi í andlitsbað og stofan væri bara skreytt myndum af körlum á brókinni pósandi með liminn á sér standandi út í loftið. Svona Sting Emil út um allt Ég er ekki að segja að mér þætti leiðinlegt að horfa á fallega bera menn, þó að mér finnist String Emil kannski ekki sexy, en af hverju er þetta svona? Eða á hárgreiðslustofum, hvernig ætli körlum líkaði að fara á stofu sem væri skreytt myndum af hálfnöktum karlmönnum á öllum veggjum Væri það bara eitthvað taboo ef það væru til dæmis bara myndir af bílum eða varahlutum á verkstæðum? Alveg eins og á snyrtistofum eru myndir af einhverjum blómum eða einhverju fallegu og róandi tónlist sem er spiluð. Og svo hárgreiðslustofurnar með myndir af hinum og þessum smart klippingum og svo framvegis.
Eins og ég sagði áðan að þá pirrar þetta mig ekki neitt, enda þarf ég ekki að fara oft inná þessi blessuðu verkstæði. Mér finnst mun skemmtilegra að eyða mínum peningum í dekur á snyrti- eða hárgreiðslu stofum
En þetta var pæling vikunnar hjá Eddu Svandísi sem veit ekkert hvað hún á að kjósa í vor..
Kalli ertu enn að spá í að bjóða þig fram . Góða vinnuviku öll sömul 

»
02.02.2009 17:03:33 / eddas
Ég veit stundum ekki alveg hvort að ég eigi að hætta með þessa blessuðu síðu mína eða hvað. Veit í raun ekkert hverjir líta hér við... væri gaman að fá eins og 1 kvitt kvitt frá ykkur  En samt veit ég ekki hvort að ég geti hætt... ég get oft skemmt mér við að lesa gömul blogg frá sjálfri mér, bæði hér inni og svo á gölmu síðunni enda hef ég verið að henda inn færslum síðan 2003. Ég verð seint titluð sem einhver ofurbloggari, en ég hafði kannski frá aðeins meiru að segja þegar ég var að vinna úti heldur en núna En þetta blogg er svona dagbók nr 2 hjá mér en ég hef oftar en einu sinni verið í hláturskasti eftir að hafa lesið í gegnum dagbækur nr.1 hjá mér. Það eru eflaust margir sem skrifa dagbækur, ég get samt ekki sagt að ég skrifi á hverjum degi í þær en þó af og til.
Ekki það að líf mitt sé innantómt í dag, alls ekki. Heldur gengur allt sinn vanagang einhvernveginn. Æi þið vitið hvað ég á við. Ég gæti sagt ykkur frá því að ég sé búin að æla úr mér lungu og lifur í dag... ekki það skemmtilegasta sem ég geri enda veit ég fátt ógeðslegra en að æla. En ég get samt sagt það að mér líður mun betur núna og skemmti mér við liggja uppi í sófa og horfa á Discovery channel mér til mikillar ánægju. Ég er nefnilega svo lukkuleg að vera komin með ca 30 stöðvar núna vantar mig bara nýjan sófa... svona til að geta orðið að alvöru sjónvarpssjúklingi, og ég held að ég sé búin að finna hinn fullkomna sófa svei mér þá  Ég skellti mér reyndar á þorrablót í vinnunni á föstudagskvöldinu þar sem ég drakk allavega 1-2 glösum of mikið af rauðvíni ...en það var allt með ráðum gert þar sem ég er að reyna lækka blóðþrýstingin og kólesterólið hjá mér haha. En þið vitið að rauðvín hjálpar til við það ...heilsan hefði samt mátt vera betri á laugardeginum. Svo ég ákvað að vera á bíl laugardagskvöldið þegar við kíktum í afmæli til hennar Heidu okkar, en skvísan á afmæli í dag, til hamingju með daginn mín kæra 
Annars er veðrið búið að vera yndislegt undanfarna daga og hefur mig langað mikið að skella mér á skíði. Vonandi að ég láti verða af því núna í vikunni... kemur í ljós  Annað sem mér finnst alveg ótrúlega gaman að ræða pólitík... nú veit ég að Jane og Hulda hætta að lesa haha. En ég verð bara að koma því frá mér hversu ánægð ég sé með nýja forsetisráðherra landsins þar sem mér hefur fundist Jóhanna hafa staðið sig hvað best í síðustu ríkisstjórn okkar. Hún er svo mikil hugsjónamanneskja og finnst mér að fleiri stjórnmálamenn ættu að taka hana sér til fyrirmyndar. Hins vegar er ég ekkert alltof viss um að þetta hafi endilega verið rétt ákvörðun sjá Samfylkingunni að slíta stjórnarsamstarfinu á þessum tíma. Hefðu þau ekki getað unnið saman allavega fram að kostningum... reynt að hreinsa aðeins upp eftir sig þá skítaslóð sem þau voru búin að skilja eftir sig. Þetta hlýtur að eiga eftir að kosta okkur e- ð að vera með alla þessa ráðherra á biðlaunum ásamt stórn FME og seðlabankans. Svo fyrir utan það, að þá er þetta nú einu sinni pólitík og það er ekkert gefið að þessi stjórn sem nú er tekin við eigi eftir að koma vel út úr næstu kosningum. Og hvað þá? Enn fleiri ráðherrar á biðlaun, fyrir utan að það tekur fólk yfirleitt smá tíma að koma sér inní nýtt starf osfrv. Nú virðast fleiri flokkar ætla að fylgja fast á eftir Framsókn með að tefla fram nýju fólki fyrir næstu kosningar. Með heilt land sem er á barmi gjaldþrots, það getur ekki verið auðvelt að taka við þessu búi.
Verkefnaáætlun þeirra er skýr, það á að bjarga fólkinu og fyrirtækjum í landinum. Hins vegar veit ég ekki hvar fjármagn til þessara aðgerða er til, það sem ég hræðist kannski hvað mest við þessa ríkisstjórn er að þurfa fara greiða um 50% í skatt eins og gert í nágrannalöndum í kringum okkur. En þessi áætlun þeirra lítur mjög vel út á blaði, nú er bara að sjá hvort að þeim takist að fylgja henni eftir.
Annað sem þau eru sífelt að tönglast á er að það sé jöfn kynjaskipting í þeirra stjórn! Fyrir mína parta á það ekki að skipta meginmáli, ég held að það séu aðeins hörðustu rauðsokkur landsins sem hoppa hæð sína yfir þessu. Fyrir mér skiptir það máli að fá rétta manneskju í starfið, óháð því hvort hún sé karl – eða kvenkyns sam- eða gagnkynhneigð. Að viðkomandi hafi einhverja þekkingu eða reynslu á þeim verkefnum sem hún taki við... ef ég spái meira í því þá finnst mér varla skipta máli úr hvaða flokki hún kemur. Það er reyndar eitt sem þau ætla að breyta í kosningarlögunum og það er að opnað verði fyrir persónukjör, þetta er það sem fólk hefur verið að biðja um í svo ótal mörg ár og er loksins að verða að veruleika... vonandi
En nóg um þetta... Ísland er jú BEZT Í HEIMI er það ekki ég ætla allavega að reyna fara fá mér e-ð að borða í tóma maga minn...
Friður... 
»
11.01.2009 14:10:29 / eddas
Gleðilegt ár kæru vinir nær og fjær og takk fyrir allt gamalt og gott ! Ég er að spá í að vera með smá annál mér og kannski fleirum til skemmtunar. Árið byrjaði með pomp og prakt þegar ég ákvað að vinda kvæðum mínum í kross og hætta að vinna hjá Atlanta og færa mig yfir í bankageirann. Á þeim tíma virtist það vera rétt ákvörðun að fara og vinna hjá SPRON, en það var einmitt á þessum tíma sem hlutirnir fóru að breytast, þannig að þetta var kannski ekki alveg eins og ég hafði ímyndað mér að þetta yrði. En vinnan göfgar manninn og það er alltaf gaman að læra e-ð nýtt svo þessi reynsla var fínt þó hún hefði verið stutt. Við fjölskyldan fögnuðum 70 afmæli minnar ástkæru ömmu í janúar og held ég bara að hún hafi aldrei litið betur út hún amma mín J Veturinn var kannski kaldur, en það var allt í lagi. Ég nýtti hann vel og skellti mér á skíði nokkrum sinnum með Ingibjörgu systir, og vona ég að þessi vetur verði jafngóður J Þann merka dag 5. apríl 2008 varð ég svo 30 og fagnaði því að hafa náð þeim aldri með vinum það kvöld og svo aðeins seinna með fjölskyldunni. Takk enn og aftur fyrir mig öll J Sumarið var ansi fjörugt og hef ég aldrei haft janf mikið að gera eitt sumar held ég og núna síðast. Ég fór aftur að vinna hjá Atlanta í maí og tók við starfi í training deildinni sem ég sé ekki eftir. Varð ástfangin, fór til Frankfurt að skoða flugherminn sem við notum þar og stuttu seinna til Svíþjóð á RM ráðstefnu ásamt nokkrum úr vinnunni. Fór í 2 brúðkaup hjá vinkonum mínum, tók þátt í að plana gæsanir þeirra beggja, endalaus afmæli, útskrift Örnu systir úr HR og ég veit ekki hvað og hvað. Náði eflaust að afreka það að gera mig að hvað mesta fíflinu þegar jarðskjalftinn var, en ég stökk í fangið á næsta manni við mig og ætlaði bókstaflega inní hann... svo hrædd var ég J Þetta var svo sem allt í lagi, þetta var bara Haukur haha, en ég er kölluð Edda skjálfti af sumum eftir þessa skemmtilegu uppákomu mína í vinnunniJ Ég passaði hana Emilíu mína í 2 vikur meðan Hulda og Gummi fóru í brúðkaupsferðina sína til Tyrklands, það var skemmtilegur tími og hef á þessu ári eignast 2 “fósturbörn” ef svo má að orði komast. Emilía og Júlíus börn Huldu og Jane hafa tekið upp þann sið að kalla mig Eddu mömmu! Já er allt í einu orðin svona rík bara haha. En þetta á eflaust eftir að vaxa af þeim haha. Náði reyndar ekki að fara í neina útilegu þetta sumarið þó mig hefði mikið langað til þess, en vonandi verður bætt úr því næsta sumar J Já það má sko alveg segja að þetta sumar hafi flogið frá mér, en ég hlakka mikið til þess næsta þar sem það verður eflaust með rólegra móti, engin brúðkaup né stórafmæli...og ég get tekið sumarfrí J
Haustið bara kom og fór, kreppan, bankahrunið, og má segja að síðustu mánuðir ársins hafi verið frekar tómlegir einhvernveginn. Gígja og Guðrún vinkonur eignuðust sína fyrstu gleðigjafa reyndar J Desember sem hefur í gegnum tíðina verið einn af mínum uppáhalds varð allt í einu eins og hver annar mánuður nema hvað hann tók eflaust hvað mest á. Það sem stendur uppúr desember er ferð mín austur til Hafnar í Hornafirði til Ingu og Sævars. Og ég held bara að ég geti aldrei þakkað þeim nógu mikið fyrir að taka mig haha , þið eruð æði bæði tvö.
Þetta ár verður reyndar ansi fjörugt að því leitinu til að það er von á 6 krílum í kringum mig sem verður bara gaman að fá að knúsa og kjassa og er ég þegar byrjuð að versla sængurgjafirnar fyrir þau haha... það er jú kreppa !
En allavega þá horfi ég björtum augum fram á veginn, það þýðir ekkert annað. Þó að síðustu vikur hafi verið erfiðar og ég kannski ekki verið alveg með sjálfri mér að þá held ég að það sé allt uppá við núna J Er að spá í því hvort að ég eigi kannski að fara drífa mig í ræktina... það er alltaf e-ð svo rosalega erfitt að byrja að það nær engri átt haha.
Við skelltum okkur 3 saman ég, Gúa og Sigga á myndlistasýningu síðasta fimmtudag á B5, ótrúlega skemmtilegt kvöld þar sem við fengum okkur góðan mat á Ítalíu og enduðum svo á B5 fram á nótt og fórum heim 7 rauðvínsglösum seinna haha. Eins skemmtilegt og þetta kvöld var, get ég ekki sagt að heilsan hafi verið jafn góð í vinnuni daginn eftir samt! En ég man bara ekki eftir því hvenær ég gerði e-ð svona síðast. Takk enn og aftur mínar kæru fyrir kvöldið.
En voila þetta er svona smá yfirlit, ég reyni að henda kannski oftar hingað inn, hver veit.
»
08.12.2008 15:37:20 / eddas
Jæja það hlaut að koma að því… blogg. Hvað hefur Eddan verið að gera? Hmmm Amor tókst að skjóta örvum sínum í hjartað mitt ótrúlegt en satt, en stoppaði þó stutt við, og reif þær úr og tókst að skilja eftir smá sár þegar huldumaðurinn hvarf á brott. Sár sem mun gróa án efa en þetta tekur smá á!
Það er svo ótrúlegt þetta líf okkar, allar þær þrautir sem við þurfum að kljást við á lífsleiðinni, væntingar sem höfum, kröfur sem við setjum og svo framvegis. En ætli það sé ekki bara stundum ágætt að go with the flow, og sjá hvar maður endar? Ég veit það ekki. En það þýðir víst lítið að hanga og vorkenna sjálfum sér, það eru svo ótal margir sem hafa það mjög slæmt og eiga um sárt að binda sérstaklega á þessum árstíma. Núna þegar þessi kreppa er skollin á og maður veit í raun ekkert hvað morgundagurinn ber í skauti sér og jólin framundan.
Í dag er ég þakklát fyrir margt.
Það eitt að hafa vinnu, það er víst ekki sjáfsagt í dag. Ég er þakklát fyrir að hafa góða heilsu, þó ég hafi fengið flensu og verði hrikalega þunn ef ég fæ mér í glas, að þá er ég samt sem áður hraust ekki svo ung stelpa. Ég er þakklát fyrir að eiga yndislega fjölskyldu þó það geti og hafi gengið á ýmsu, að þá er hún og verður alltaf fjölskyldan mín sem mér þykir óendanlega vænt um. Ég er þakklát fyrir alla mína góðu vini sem ég hef eignast á lífsleiðinni, sumir hafa fylgt mér síðan ég var í barnaskóla öðrum hef ég kynnst seinna meir. …Og ég er þakklát styrkingu krónunnar undanfarna daga hahaog ég vona svo innilega að hún haldi því áfram svo að hlutirnir geti farið að ganga sinn vanagang aftur. En nóg af þessu volæði, það er víst nóg framundan. Mín kæra vinkona Guðrún er að koma heim á morgun og hún gæti ekki verið að koma heim á heppilegri tíma held ég Jólin, það þarf víst að gera ýmislegt fyrir þau, ég er að vísu að vera búin að skrifa öll jólakortin 50-60 stk þar ásamt því að vera næstum búin að versla allar 17 jólagjafirnar. Næstu viku ætla ég að nota til að láta gott af mér leiða fyrir jólin og aðstoða við jólaúthlutun Mæðrastyrksnefndar en þær búast við að 6-7000 manns komi til með að leita til þeirra fyrir þessi jól. Það eru helmingi fleiri en í fyrra. Oft er þörf en nú er nauðsyn að standa saman og aðstoða þá sem minna mega sín. En ég ætla að reyna gera e-ð klára þessi kort mín kannski. Vona að þið hafið ekki þurft að gubba eftir þessa lesningu haha, hún er kannski í væmnari kanntinum en svona getur þetta stundum verið!
»
06.08.2008 00:36:59 / eddas
Jæja þá er báran komin í bleyti og majonesan orðin gul... og sumarið bara að vera búið  ótrúlegt hvað þetta sumar er búið að fljúúúúga. En það eru þó enn nokkrir dagar eftir og vonandi að það verði heitir dagar  Ég verð að viðurkenna að mér finnst stundum gaman að sjá hvað annað fólk í þjóðfélaginu er með í laun svona þegar það er gert opinnberlegt í ágúst. Verra finnst mér samt að lesa um það hvernig sumir hljóta að hafa það sktítt og eiga eflaust mjög erfitt með að láta enda ná saman. Ég var að skoða inná vísi nokkra þjóðþekkta einstaklinga og kom það mér verulega á óvart að sumir hverjir eru á mun lægri launum en ég. T.d. Tvíburarnir Arnar og Bjarki Gunnlaugssynir. Mér sýnist á öllu að þeir eigi vart fyrir salti í grautin samkvæmt þessum tölum en hvorir um sig eru með rétt rúmlega 100.000kr í laun á mánuði. Ég mætti öðrum þeirra um daginn á þessum fína BMW eða benz jeppa (bíll er bara bíll fyrir mér)... ætli hann hafi ekki bara fengið hann að láni til að skreppa í bónus  Ég vona innilega þeirra vegna að ÍA komi til með að borga þeim aðeins meira á mánuði en þetta  Og Þorgrímur Þráinsson, mikið hlýtur hann að eiga mikið bágt og ég bara skil ekki hvers vegna maðurinn hefur ekki leitað réttar síns þar sem lágmarkslaun hér á landi eiga að vera í kringum 150.000 samkvæmt VR, en Þorgrímur er með skíttnar 94.000kr. Ég er að velta því fyrir mér hvort að ég eigi að senda þremenningunum upplýsingar um Mæðrastyrksnefnd eða heimilishjálp Íslands. En það er deginum ljósara að Þorgrímur verður að vanda sig aðeins betur við gerð næstu bókar, kollegi hans hann Arnaldur virtist hafa selt mun fleiri bækur en hann í fyrra samkvæmt vísi. En svona er Ísland í dag... you just have got to love it
»
12.07.2008 01:20:41 / eddas
»
11.06.2008 22:22:50 / eddas
... Það er ég allavega Ég elska sumarið, sérstaklega á dögum sem þessum, svona má þetta vera í allt sumar...ætli það sé ekki lagi að það rigni vel ca 1 dag í viku fyrir gróðurinn. En svo má sólin sýna sína fallegu geisla hina dagana
»
01.05.2008 23:19:51 / eddas
já nú er sko komið sumar...ég og Gúa skelltum okkur í smá göngu upp Esjuna og enduðum svo í sólbaði í Laugardalslauginni alveg hreint ótrúlega nice dagur  plan morgundagsins er að fjárfesta í einu stk hjóli og liggja svo og sleikja sólina í sundi  já ég verð í fríi, "sumarfríi" ef svo má að orði komast en svo byrja ég aftur á mínum gamla vinnustað næsta mánudag jebbsícola ég er að fara aftur til Atlanta. Síðasti dagurinn hjá SPRON var í gær... það eru held ég orð að sönnu sem Draupnir vinur minn sagði um daginn að við erum brennimerkt for life fólk sem er í þessum "flugbransa". Það er ótrúlega erfitt að slíta sig í burtu frá honum, hvort sem það er að vinna sem flugmaður, freyja eða bara óbreyttur starfsmaður á skrifstofunni  En mikið verður gaman að komast í smá action  og hitta "gömlu" vinnufélagana aftur eftir 3ja mánaða fjarveru  . Annars eru bara rokk og rólegheit á þessum bæ, stúlkan er farin að hreyfa sig aftur og kíkja í heimsókn í wc. En annars var verið að reyna draga mig á bergásball í Keflavík á laugardag...verður eflaust mikið fjör en ég er komin í smá pásu og ætla að eyða laugardeginum og kvöldinu með honum Júlla dúlla litla vini mínum  við munum eflaust fara út að leika, horfa saman á bubba byggir eða fara í búðarleik og fleira skemmtilegt  held að e-ð djamm toppi þetta seint sko  .  Júlíus aka Bubbi byggir  En annars vona ég að þið eigið góða helgi, mín verður eflaust frábær
»
26.04.2008 22:31:09 / eddas
»
26.04.2008 01:44:31 / eddas
Jæja þá er komið að skuldadögum ...Blogg löggan, sem ég hef grun um að sé Bella búin að vera með hótanir í minn garð, svo það er ekki seinna vænna en að henda hér einhverju inn...
Já ég er orðin 30!!! Átti alveg hreint yndislegan dag með frábæru fólki. Hulda, Jane, Gummi og krakkarnir færðu afmælis”barninu” köku og nýbakað brauð um morgunin og stoppaði síminn ekki allan daginn. Takk kæru vinir nær og fjær fyrir allar kveðjurnar og fallegu gjafirnar, ég var svo lukkuleg að fá ipod í afmælisgjöf og er nú öllum stundum að hlaða inná itunes og búa til playlista ótrúlega skemmtilegt... svona þegar ég loksins lærði á þetta. Um kvöldið kíktum við stelpurnar aðeins á tjúttið, myndir af þessu á facebook .Official afmælispartýið verður svo haldið núna í maí, en stúlkan er búin að redda sal fyrir herlegheitin . Annars elska ég veðrið núna, vori í lofti, fuglasöngur og farið að vera bjart fram eftir öllu ...að ógleymdum helv... býflugunum. Varð vör við eina á leið minni í bílinn í morgun... og ég hvorki öskraði né hljóp undan haha...vona að ég sé öll að koma til.
Ég kom sjálfri mér verulega á óvart á miðvikudaginn vægast sagt . Skellti mér í vissuferð með Atlanta og var byrjaði á því að koma við hjá Skotveiðifélagi suðurlands þar sem við fengum að skjóta leirdúfur. Ég hef aldrei haldið á byssu yfir ævina en tókst samt að hitta 4/6 “dúfum” með þessari blessuðu haglabyssu Get samt ekki sagt að þetta sé það skemmtilegasta sem ég hef gert haha.Var skíthrædd ef e-ð. Þaðan var svo haldið á Stokkseyri á Hóla þar sem farið var í leiki, grillað og sungið. Ótrúlega skemmtileg ferð með skemmtilegu fólki auðvitað . Annars fjölgar stanslaust í vinkonuhópnum mínum. Íris átti lítinn strák 9.apríl, Berglind og Júlli eiga svo von á litlu tillaskotti í september, ein önnur vinkona mín gengur með strák... þannig að það er spurning hvort að þetta verði ár lítilla tillaskotta haha, verður gaman að sjá hvað Magga og Guðrún Jóna koma með ...er ég nokkuð að gleyma einhverjum???
En jæja ætli það sé ekki best að fara tía sig í háttinn, planið er að fara á morgun og fjárfesta í einu stykku reiðhjóli fyrir afmælispeninginn og hjóla út í eitt...já ég bara verð að fara koma mér í smá form...ekki seinna vænna...
»
01.04.2008 22:57:51 / eddas
Já í dag er víst 1. apríl og náði ég að fara í gegnum daginn án þess að láta gabba mig...ótrúlegt en satt Mér tókst þó að gabba eina manneskju mér til mikillar ánægju og yndisauka haha  Svo var auglýst á innra netinu í vinnuni í dag að markaðsdeildin væri að selja hinn ýmsa varning á gjafaprís eða jafnvel gefa... rosendahl karöflur, salatskeiðar á 500kr og geisladiskar, súkkulaði og playstation 3 leikir gefins. Well við gátum okkur flest til í útibúinu að þetta væri grín...ekki eins og það sé góðæri hjá SPRON þessa dagana ... eeeen hún Jane mín yndislega vinkona gleypti við þessu og spurðist fyrir um þetta (sorry elskan hahaha). Vona að það hafi ekki verið margir sem bitu á agnið hjá olíufélögunum þar sem lítrinn var auglýstur á 106kr... sem þótti samt ansi mikið fyrir ekki svo mörgum mánuðum síðan!!! Óþolandi þetta bensínverð og vona ég svo innilega að það komi e-ð út úr þessum mótmælum sem hafa verið í gangi undanfarna daga. Þó ég hafi ekki tekið þátt sjálf þá styð ég þau heilshugar, og pirra mig ekki þó það taki mig 20 mín lengur að komast heim til mín meðan á þeim stendur Það hlýtur að telja með haha. Annars fór páskafríið að mestu leiti í veikindi, eins glatað og það getur verið. Skellti mér reyndar á skíði og hef því afrekað að fara 2 í mars, klapp fyrir mér En stúlkan er öll að koma til sem betur fer og verður eflaust orðin úber hress næsta laugardag...þegar “litla”stelpan verður 30...shit shit shit, og þetta er sko ekkert apríl gabb Það verður spes...ég hef reyndar verið sallaróleg yfir þessu undanfarið satt best að segja, en fékk svo nettan hnút í magan í dag yfir þessu. En það er ekki eins og ég liggi við grafarbakkan við það eitt að verða 30, mér líður vel andlega og líkamlega og ég held að það verði bara allt uppá við hér eftir haha. Annars held ég að aldurinn sé ekki e-ð sem fólk á að fá magasár yfir, þetta er víst bara partúr af prógrammet fru Stella . Formleg veisla verður svo haldin í maí...það virðist vera pínu erfitt að fá sali leigða yfir fermingarnar
Hvernig ætli maður verði svo, er þetta það sem koma ska ... 
  Sweet dreams everyone ...
»
14.03.2008 00:45:25 / eddas
Alltaf er maður að heyra eitthvað nýtt... Muniðið eftir söngvaranum sem söng lagið Dont worry be happy? Hann heitir Bobby Mcferrin FYI og gerði garðinn frægan með þessu lagi 1988. Mér var sagt að hann hefði framið sjálfsmorð, mér fannst það pínu kaldhæðnislegt að maður sem hefði samið þetta mjög svo hressandi lag hefði svo bara ákveðið að fara yfir móðuna miklu! Eeeeen svo núna um 20 árum seinna var ég að komast að hinu sanna já karlinn er líka bara svona sprelli lifandi í dag og er enn að syngja...ég er nú ekki sú eina sem hélt þetta sem betur fer haha. Ég veit ekki hvort að ég hafi sagt frá því áður hversu ótrúlega heppin ég er að eiga frábærar vinkonur sem mér þykir alveg endalaust vænt. Ekki nóg með að þær séu frábærar þá eiga þær auðvita alveg yndisleg börn allar sem ein. Ég umgengst þau mis mikið sjálf, ekki það að ég sé að reyna gera uppá milli, en það er bara þannig að suma umgengst maður meira dagsdaglega en aðrar. Þó ég eigi ekki börn (í dag) þá finnst mér ég nú eiga smá í nokkrum börnum vinkvenna minna . Það er svo ótrúlegt hvað eitt lítið barn getur kætt eina manneskju ótrúlega mikið bara með einu knúsi sem ég fékk frá honum Júlla byggir í gær ...já eða einu símtali. Í kvöld skellti ég mér í leikhús og þegar ég kom út biðu mín 2 talskilaboð, þegar ég svo hlusta þá er þetta dóttir einnar vinkonu minnar 2ja ára mús sem segir stöðugt hæ Edda mamma Já ef þetta yljar manni ekki um hjartarætur þá veit ég ekki hvað haha. Oft þarf ekki mikið til að gleðja mann .
Læt eina fylgja af litlu villingunum mínum
Það er búið að vera meira en nóg að gera sem er alltaf skemmtilegt , skellti mér á konukvöld létt bylgjunnar í Smáralind í gær með Jane vinkonu, æðisleg kvöld í alla staði sem endaði með Páli Óskari þar sem hann tók Allt fyrir ástina, Betra líf og International, æi hann er bara svo mikið ÆÐI. Allar verslanirnar voru opnar til 23 sem er ekki leiðinlegt æðisleg stemning allstaðar, kveikt á kertum í verslunum þar sem boðið var uppá vín og súkkulaði. Já mér finnst að það eigi að vera svona konukvöld ca 1 sinni í mánuði, við eigum það skilið haha. Annars skellti ég mér á Ívanov í Þjóðleikhúsinu í kvöld, alveg ótrúlega góð sýning og rosalega dramatísk. Ég var búin að sjá Brúðguman og bjóst við að þetta væri svipað en sýningin kom verulega á óvart sem er alltaf skemmtilegt mæli með henni ef þið hafið ekki nú þegar skellt ykkur...aðeins ein sýning eftir held ég. Já ég var búin að ákveða það að fara á bæði myndina og leikritið – check – Núna á ég bara eftir að skella mér á skíði sem ég get vonandi látið verða af um helgina ...sjáum hvað setur.
Dont worry, be happy now
»
08.03.2008 00:26:08 / eddas
Eigum við að ræða þetta e-ð frekar??? Var að lesa inná mbl þessa mjög svo áhugaverðu "celeb" frétt um kyntröllið Matthew McConaughey sem er að verða pabbi á þessu ári. Persónulega finnst mér þetta fræga fólk fara út í algjörar öfgar þegar kemur að því að velja nöfn á litlu sætu börnin sín, oftar en ekki eru þau skírð eftir einhverri stórborg eða ávöxtum osfrv. Matthew my friend vill hinsvegar breyta aðeins útaf vananum og skíra litla krílið sitt eftir uppáhalds BJÓRNUM sínum Bud. Hvað gengur fólki til, án gríns!!! En sjaldan fellur eplið langt frá eikinni, en bróðir hans skírði barnið sitt þessu líka fallega nafni Miller Lyte  All looks and no brain, ég ætla rétt að vona að konan hans fái e-ð um málið að segja    hann er samt one fine man  þó honum finnist Bud góður haha. Þetta var miðnæturblogg í boði Eddu Svandísar sem er líka orðin svona hress bara  Bon nuit
»
05.03.2008 20:57:17 / eddas
Jæja allt og ekkert að gerast hjá mér þessa dagana. Skellti mér á árshátíð Air Atlanta síðustu helgi og skemmti mér ótrúlega vel í hópi alveg hreint yndislegra vina og fyrrum vinnufélaga takk fyrir mig frábæra fólk. Ég fór í "smá" meðferð fyrir þessa árshátíð, brúnkumeðferð og varð fyrir nettu áfalli í leiðinni haha. Ég fékk tíma í hádeginu á föstudegi og skrapp þar af leiðandi úr vinnu. Ég vil bara byrja á því að segja að ég mæli ekki með því að fólk skreppi frá úr vinnu í svona meðferðir...sérstaklega þegar þú ert í þjónustu starfi. Ég kom semsagt til baka eins og “genuine chocolate face” og varð að þrauka daginn í vinnunni eins og FÍFL. Fólk sem settist niður hjá mér horfði á mig og hugsuðu öll sem eitt æi greyið henni finnst hún eflaust flott svona brún haha. Ég hreinlega nennti ekki að segja við hvern og einn að ég ætti nú eftir að skola þetta af mér osfrv en mikið hlakkaði ég hinsvegar til að komast í sturtu. Heida tók nú eina mynd af mér...ég þarf endilega að komast yfir hana haha. En burt séð frá því þá var nú ótrúlega gaman á kvöldinu og það er nú það sem máli skiptir . Myndir frá kvöldinu eru inná Facebook  Í dag er ég hins vegar búin að vera rúmliggjandi með hita, hor, slef og beinverki. – skemmtilegt – Ég held að ég viti fátt leiðinlegra en að hanga svona. Ekki nóg með það að ég sé með flensuna heldur er ég með ljótuna, bóluna og ég veit ekki hvað. Mér líður eins og eitt af 7 undrum veraldar hafi planntað sér á ennið á mér, það er píramídarnir í Giza...já þið þurfið ekki að ferðast langt til að sjá þá...bara rétt að kíkja við í Kópavogin !!! En ég hef þó til einhvers að hlakka sem betur fer... Guðrún Erla vinkona fer brátt að koma til landsins frá Krít, það verður fjör. Einnig á ég von á annari vinkonu sem býr erlendis og ætlar að koma í heimsókn fljótlega óvænt...ég fer í leikhús í næstu viku og hlakka mikið til, en Guðrún vinkona ætlar að skella sér með með mér á Ivanov og ætlum við að láta dekra við okkur á Austur India áður...við förum að verða fastakúnnar þar á bæ vinkonurnar haha. Svo er ég nú að verða 30... er svona að melta það hvar ég eigi að halda uppá afmælið og hvenær... stay tuned . Tónleikar með Eric Clapton í sumar með Örnu systir , brúðkaup Ástu og Togga og Huldu og Gumma og vonandi einhverjar utanlandsferðir... Sjáum hvað setur.
Talandi um brúðkaup, þá sá ég viðtal við einn af Fáfnismönnum á visir.is þar sem er talað um að hann hafi verið að trúlofa sig en að gifting sé ekki á næsta leiti fyrr en eftir að hann ljúki afplánun... sjálfri finnst mér þetta nú tilgangslaus frétt en fannst þó gaman að lesa um að honum kvíði ekki fyrir að fara inn þar sem Hraunið sé uppfullt af yndislegum einstaklingum, föngum og starfsfólki. Mikið er ég nú glöð að öll dýrin í “skóginum” geti verið vinir... hóst.
Nú er saumó...og ég er hér gullgellurnar eru að hittast hjá Jane í kvöld, ætli ég hendi ekki Bridget Jones, Notting Hill og Notebook í tækið og haldi áfram að vorkenna sjálfri mér all by myself... Já mikið væri nú gott að hafa einhvern til að hjúkra og dekra við sig á dögum sem þessum .
Best að halda áfram að dæla í sig sólhatti... 
»
Síður: 1 2 3 ... 8
|
Heimsóknir
Í dag: 5 Alls: 38927
|